Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 18.18
Hvammur rekinn á yfirdrætti
Hvammur, dvalarheimili aldraðra á Húsavík hefur undanfarna mánuði verið rekinn á yfirdrætti í Landsbankanum. Rekstrarvanda heimilisins má rekja til þess að ekki hefur fengist heimild félagsmálaráðuneytisins til þess að fjölga þar hjúkrunarrýmum.

Að rekstri Hvamms standa Norðurþing, Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur og Tjörneshreppur. Á heimilinu eru nú samkvæmt skilgreiningu félagsmálaráðuneytisins 10 hjúkrunarrými og 35 dvalarrými. Hjúkrunarrýmin krefjast mun meiri fjármuna frá ríkinu. Brýn þörf hefur lengi verið á að fjölga hjúkrunarrýmum á Hvammi um tíu og hefur meðal annars verið vísað til þess að fimmtán prósent íbúa í þessum sveitarfélögum eru 67 ára og eldri samanborið við rúm 11% víða annars staðar á landinu. Uppsafnaður rekstrarvandi heimilisins vegna þessa er nú um 40 milljónir króna.

Soffía Helgadóttir formaður stjórnar Hvamms segir hér um mikinn bráðavanda að ræða. Hún vonast til þess að eiga sem fyrst fund með félagsmálaráðherra um málið.

Segir á www.ruv.is


Soffía Helgadóttir, formaður stjórnar Hvamms.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000