Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Borðstofuborð og sex stólar

Endurvakning á Garðyrkjufélagi

Geymsluhúsnæði í Aðaldal
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 16.17
Hátt í 7000 manns á Mærudögum á Húsavík
Samkomuhaldarar og lögregla á Húsavík áætla að um 7000 manns séu saman komnir í bænum í dag í tilefni Mærudaga, bæjarhátíðar á Húsavík.
Allt hefur farið fram með besta móti en að sögn lögreglu var þó töluverð ölvun í gærkvöldi en án óláta. Dagarnir hafa verið nokkuð annasamir hjá lögreglu fyrst og fremst vegna tilkynninga um týnda hluti svo sem veski, farsíma og fleira smálegt. Umferðaróhöpp hafa lítil sem engin verið, einstaka nudd á bílum á bílastæðum að sögn lögreglu.
Búist er við miklum mannfjölda á hafnarsvæðinu í dag og kvöld þar sem aðalhátíðarhöldin fara fram.
í morgun og dag fór fram hraðfiskimót, strandblak, pílagrímsganga kringum Botnsvatn, krakkahlaup Íslandsbanka, mótorhjólasýning og leiksýningin Hans Klaufi var sýnd í skrúðgarðinum auk þess sem mikið var um að vera á hafnarstéttinni m.a. hrútasýning, spákona, tívolí og fleira.
Nú um kl. 15:30 hófst svo fjölskyldusamkoma á stéttinni og svo önnur kl. 20:00 í kvöld sem mun standa til kl. 01:00. Þá verða dansleikir með hljómsveitunum Hommum og Fígúru á veitingastöðum bæjarins.
Mikil gleði ríkir í bænum og bros á hverju andliti ungra sem aldinna og óskandi að svo verði til loka hátíðarhaldanna sem verða á morgun.


Mikill fjöldi á Hans Klaufa í skrúðgarðinum í dag.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000