Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
12.52
Mikið um að vera í Þingeyjarsýslu í dag
Á sama tíma og Mærudagar fara fram á Húsavík eru fleiri samkomur í gangi í sýslunni.
Nú kl. 12:00 hófst til að mynda Jökulsárhlaup 2010 við Dettifoss þar sem metþáttaka er eins og við höfum áður greint frá.
Á Breiðumýri fer fram hin árlega Harmonikuhátíð Harmonikufélags Þingeyinga og Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Hátíðin hófst í gærkvöldi með dansleik þar sem hinar ýmsu „grúppur“ léku fyrir dansi. Að sögn manna var góð stemning á svæðinu þar sem gestir voru um 400 talsins.
Í dag milli kl. 14 og 16 leika ýmsir harmonikuleikarar á svæðinu m.a. Tríó Villa-Vala frá Ísafirði, Aðalsteinn Ísfjörð, Einar Guðmundsson, Gísli H. Brynjólfsson og Sigurður Hallmarsson. Þá verður harmonikusýning frá Einari Guðmundssyni.
Kl. 18 - 20 verður sameiginlegt grill og svo dansleikur frá kl. 22:00 og fram eftir nóttu.
Í Reykjahlíðarkirkju við Mývatn munu Benedikt Kristjánsson, tenór og Sergio Coto-Blanco gítarleikari flytja ljóðaflokkinn Songs from the Chinese ásamt ýmsum þjóðlagaútsetningum og verkum eftir ýmsa höfunda. Þeir tónleikar fara fram kl. 21:00 og er aðgangur ókeypis.
Það þarf því engum að leiðast í Þingeyjarsýslum um helgina frekar en aðrar helgar. Blíðskaparveður er á öllu svæðinu og veðurspáin góð.

Merki harmonikufélags Þingeyinga
<<til baka
|
|
Skráin |
|