Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
11.48
Sjöunda Jökulsárhlaupið á morgun
Á morgun, laugardaginn 24. júlí fer Jökulsárhlaup 2010 fram í sjöunda skipti. Fyrst var hlaupið þar árið 2004 þegar 80 þátttakendur fóru mislangar vegalengdir. Fjöldi hlaupara hefur aukist ár frá ári og í ár er útlit fyrir metþátttöku því 358 hafa skráð sig til keppni.
Keppnin hefst í 350 metra hæð yfir sjávarmáli við Dettifoss kl. 12:00 á morgun þegar þeir sem hlaupa lengst eða 32,7 km. leggja af stað.
Óhætt er að segja að hlaupaleiðin eigi engan sinn líka hvað varðar umhverfið. Öll leiðin liggur um stígakerfi þjóðgarðsins. Hlaupið er um hrjóstruga mela og grófar klappir, eftir moldargötum í grónu landi og eftir göngu-/fjárgötum í gróskumiklum birkiskógi. Lokaleggur allra leiðanna liggur meðfram barmi Ásbyrgis, þeirri náttúrusmíð sem talið er að Jökulsáin hafi grafið í stórkostlegum hamfarahlaupum.

Hlaupið á gljúfurbarmi.
<<til baka
|
|
Skráin |
|