Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 21.00
Alvarlegt rútuslys í Reykjadal
Alvarlegt umferðarslys varð við bæinn Einarsstaði í Reykjadal um kl. 18:30 í kvöld þegar rúta með 15 farþega, leiðsögumann og bílstjóra innanborðs á leið í Mývatnssveit, valt á hliðina á mikilli ferð.

Mikill viðbúnaður var á staðnum og voru lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir frá Húsavík, Aðaldal, Mývatnssveit og Akureyri þegar sendar á vettvang.

Samhæfingarstöð Almannavarna var virkjuð og þyrla Landhelgisgæslunnar og sjúkraflugvél á Akureyri voru settar í viðbragðsstöðu.

Að sögn lögreglu eru 3 mikið slasaðir en aðrir hlutu minniháttar meiðsl. Allir voru fluttir með sjúkrabílum til Akureyrar til nánari skoðunar.

Rútan var að koma niður af Fljótsheiði og var á mikilli ferð þegar kom að vinkilbeygju á veginum, náði ekki beygjunni og valt í vegarkantinum.
Tildrög slyssins eru að öðru leyti óljós en líklegt er að bremsukerfi rútunnar hafi gefið sig með fyrrgreindum afleiðingum. VP


Rútan á hliðinni. Í baksýn má sjá brekkuna niður af Fljótsheiði, veginn sem rútan kom.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000