Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
14.56
Húsavík skrýðist hátíðarbúningi
Bæjarbúar hafa heldur betur tekið til hendinni um helgina og litskreytt í gríð og erg, þannig að bærinn hefur aldeilis breytt um svip frá því á föstudag þegar litgreinir Skarps ók Mærurúntinn. Litavæðingunni er þó hvurgi nærri lokið, en segja má að Húsavík sé nánast komin í hátíðarbúninginn fyrir Mærudagana.
Ekki tókst að skoða allar götur bæjarins á mærulitarúntinum nú eftir hádegið. En lausleg athugun bendir til að einna bestur heildarsvipur sé nú á Brúnagerði í Bleika hverfinu, Ásgarðsveginum í Græna hverfinu og Sólbrekkunni í Appelsínugula hverfinu. En þetta á kannski eftir að breytast.
Allt möguleg er notð til skreytinga. Slaufur, borðar, ljósaseríur, hjólbarðar, garðhúsgögn, blöðrur, veifur, Mærufánar, kassar, steinar, broskallar, málaðir veggstubbar, blómapottar, luktir, brunahanar, dúkkur og bara nefndur það.
Úti á miðjum fótboltavelli er til dæmis heljarmikil appelsínugul fuglahræða. Nú, einhverjir Grænhverfungar hafa áður sýnt sig í því að hengja rabbarbarablöðkur upp á þvottasnúrur, þannig að það er allt tínt til!
Og fólk er jafnvel þegar farið að skreyta sjálft sig, því við mættum gutta á hjóli sem hann hafði skreitt bleikum borðum og sett svo bleikar strípur í hárið á sér! JS

“Ég elska mæru – það er á tæru!” Segir þessi hnáta í Brúnagerði sem er í Bleika hverfinu sem sjá má.
<<til baka
|
|
Skráin |
|