Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Borðstofuborð og sex stólar

Endurvakning á Garðyrkjufélagi

Geymsluhúsnæði í Aðaldal
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 15.00
Húsavík í dag: Á Mærulitarúntinum
Skarpur brá undir sig betri dekkjunum nú eftir hádegið og fór á Mærulitarúntinn til að taka stöðuna á litavæðingu hverfanna fyrir Mærudaga sem hefjast í næstu viku. Vísindaleg niðurstaða af þessari rannsóknarferð er sú að almennt eru bæjarbúar ekki byrjaðir af krafti að græja hverfin græn, bleik og appelsínugul. Nokkrir hafa þó hafist handa og sumir eru búnir. Við gerum því ráð fyrir að margir ætli að gerast litríkir um helgina, og munum því taka annan litarúnt á mánudag í samanburðarskyni. En þetta bar helst fyrir augu á litarúntinum.

Í miðbænum er litaþrenningin frá Bakaríi flott, þó einhverjir innfæddir “Grænfriðungar” amist þar við óranslitaðri Ískeldu í Græna hverfinu. Mærugrænkan hefur og tekið völdin í Skóbúðargluggunum og sömuleiðis hjá Esar. Olíusölurnar eru greinilega í vitlausum hverfum, við Shell í Appelsínugula hverfinu, eru bleiku Oktanlitirnir áberandi og sömuleiðis hinir smellugasgrænklæddu starsfmenn Olís í Bleika hverfinu.

Við Baldursbrekku 9 er búið að raða óransmáluðum steinum og slíkum mun ugglaust fjölga við götuna næstu daga. Glitti í lit á gamla Harðangri þar sem hluti af handriði hefur verið málaður í réttum lit. Mærufánar blakta á bílastæði KÞ, blessuð sé m.þ.

Byrjað er að efna í Mærubrennuna í fjörunni, þar komin nokkur bretti í fúndamentið. En Hjálmar Mæruprins er ekki enn búinn að leggja litaða hornsteina að hinni miklu Mæruvörðu sem á að rísa þar skammt frá. Drífðu nú í þessu drengur! Grindverk á Túngötu er grænmálað og ljósaseríu snúið um það, enda Túngötubúar hvurgi ljósfælnir. Þar er líka fullt af grænum trjám.

Við Heiðargerðisraðhús hafa verið upp hengd bleik málningarfötulok, líkast til lok af brúnni málningu. Renni því upp í Brúnagerði sem var einstaklega bleikt í fyrra, en er ennþá bara brúnt. Sé reyndar eitt bleikt reiðhjól en það er bleikt frá náttúrunnar hendi og telst því ekki með.

Torgarar eru aðeins komnir í Mærugírinn því Leikskólinn á Grænuvöllum er með grænu ívafi og borðalagður, enda er hann á Grænuvöllum en ekki Bleikuvöllum. Við Fossvelli 12 trónir dulítil varða úr grænum steinum. Og Hvala-Hrólfur er búinn að mála eitt hornið á Melstað að hluta. Handan götunnar er Metro snyrtilega skreytt í grænu og raunar íbúðargluggar í Búrfelli einnig.

Renni upp á Ásgarðsveg en þar býr og hefur löngum búið litríkt fólk. Grænsteinaskreyting er við hús númer 7. Og Ásgarðsvegur 11 er þegar fallega grænskrýddur, en Aðalsteinn Kjartans sem þar býr, segist þó bara vera rétt að byrja og eigi eftir að bæta miklu við. Þetta er sem sagt allt að koma. Og við kíkjum aftur í bæinn á mánudaginn með litagleraugum á nefinu. JS


Ásgarðsvegur 11 er í Græna hverfinu eins og sjá má.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000