Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
15.21
Ystihver gaus í morgun
Á tíunda tímanum í morgun var Ystihver á Hveravöllum mataður á sápu og látinn gjósa. Tilefnið var árleg heimsókn Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna.
Gosið tókst vel, nema hvað aðstæður voru ekki upp á það besta, þoka og mikill raki í loftinu, sem gleypti í sig gosið sem fyrir vikið varð ekki eins tignarlegt og til var ætlast, en engu að síður áhrifamikið enda hrifust Jarðhitaskólanemar mjög.
Freyja Dögg Frímannsdóttir frá Rúv var á staðnum, þannig að vænta má mynda frá gosinu í kvöldfréttatíma sjónvarps. Meira um málið í Skarpi á morgun. JS

Allar myndarvélar á lofti þegar Ystihver blæs úr sér.
<<til baka
|
|
Skráin |
|