Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Borðstofuborð og sex stólar

Endurvakning á Garðyrkjufélagi

Geymsluhúsnæði í Aðaldal
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 11.30
Meistaramóti GH: Siggi Hreins og Birna Dögg
Meistaramóti Golfklúbss Húsavíkur á Katlavelli lauk um helgina í fallegu veðri. Í meistaraflokki karla vann Sigurður Hreinsson nokkuð öruggan sigur, annar varð Unnar Þór og þriðji Skúli Skúla. Skarphéðinn vann 1. flokk karla, Benedikt Þór varð annar og Kristinn V þriðji.

Kvennaflokkinn vann Birna Dögg, Jóhanna varð önnur og Björg J númer þrjú. Unglingaflokkinn vann Bergþór Atli, Reynir Örn var í öðru sæti og Ólafur Erick varð þriðji. Í öldungaflokki var hörkukeppni og á endanum stóð Hermann Ben. uppi sem sigurvegari, hann vann Bjarna Sveins með einu höggi. Öll úrslit er að finna á www.golf.is

Veðrið var ekki gott fyrstu tvo dagana eiginlega skítaveður en það rættist úr því og síðustu tveir dagarnir voru spilaðir við toppaðstæður. Völlurinn er að verða alveg frábær og á bara eftir að verða betri í sumar. Þakkir til allra sem veittu hjálp við mótið og sjoppan fær hrós fyrir veitingarnar.

Næstu mót eru Landsbankamótaröðin á miðvikudag og svo er stórmót Öryggis um næstu helgi. (ghgolf.is)


Siggi Hreins tryggir sér sigurinn. Mynd: ghgolf.is


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000