Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 11.08
Ánamaðkaræktun á Bakka hafnað!
Sigurjón Benediktsson fyrir hönd óstofnaðs hlutafélags, hefur sótt um a.m.k. 50 hektaraiðnaðarlóð að Bakka norðan Húsavíkur til ræktunar ánamaðka til jarðbóta og sölu til veiðimanna. Skipulags- og bygginganefnd fjallaði um umsóknina á fundi í gær. Og bókaði meirihlutinn svo um málið:

“Umrætt svæði er á gildandi aðalskipulagi skilgreint sem iðnaðarsvæði og ætlað undir mögulega orkufreka stóriðju skv. greinargerð skipulagsins. Ekki verður séð að jafnvel stórfelld ánamaðkaræktun á 50 ha lands falli undir skilgreiningu sem orkufrek stóriðja. Því telur meirihluti nefndarinnar úthlutun lands undir ánamaðkaræktun á skilgreindu iðnaðarsvæði við Bakka ekki í samræmi við gildandi aðalskipulag og leggur því til við sveitarstjórn að umsókninni verði hafnað. Hinsvegar telur meirihluti nefndarinnar líklegt að ánamaðkaræktun geti talist landbúnaður og telur mögulegt að útvega umsækjanda allt að 50 ha af landbúnaðarlandi við Saltvík verði þess óskað.”

Hilmar Dúi Björgvinsson lét bóka: "Fyrir hönd V-listans í Norðurþingi fagna ég uppkominni hugmynd óstofnaðs félags um atvinnustarfsemi á Bakka. Við í V-listanum styðjum heilshugar fram komna hugmynd um "eitthvað annað" í sveitarfélaginu. Ég bendi þó á þá staðreynd að það þurfi að auglýsa lóðina lausa til umsóknar áður en gengið verði til samninga við hið óstofnaða félag "Maðkur í mysunni ehf." þar um. Ég legg því til við sveitarstjórn Norðurþing að lóðin verði hér með auglýst laus til umsóknar."


Sigurjón Benediktsson í ánamaðkaræktunargallanum sínum.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000