Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
10.43
Minjaskráning gengur vel á Seljadal
Á vef Hins þingeyska fornleifafélags kemur fram að. Ljómandi vel gengur að skrá minjar á Seljadal og stefnt er að því að ljúka skráningunni í ár en hún hófst sumarið 2007 á vegum Hins þingeyska fornleifafélags og er framkvæmd af Fornleifastofnun Íslands. Fornleifafræðingarnir Birna Lárusdóttir og Elín Ósk Hreiðarsdóttir annast skráninguna og vinna nú á nyrsta hluta dalsins en göngu- og kynningarverkefni Hins þingeyska fornleifafélags og Fornleifastofnunar Íslands, „Fornir fimmtudagar“ hófst einmitt með heimsókn til Birnu og Elínar í tóftirnar í Láfsgerði sem eru á norðurmörkum dalsins.
Markmið skráningarinnar er að afla upplýsinga um upphaf og eðli byggðar á Seljadal og nýtingu hans og jafnframt að leggja drög og þróa leiðir til að kynna dalinn og minjar hans fyrir heimamönnum sem og ferðafólki í framtíðinni.
Margt nýtt og skemmtilegt hefur komið í ljós við skráninguna og má þar nefna mögulega skálarúst, skammt frá Brenniseli, andspænis Kvígindisdal en dalurinn er ríkur af fornlegum minjum sem mörgum hverjum hefur ekki verið raskað svo neinu nemi, auk margvíslegra minja um yngri mannanna verk s.s. byggð á 19 og 20 öld. UIng.

Mögulegur stekkur skammt frá Seljadalsá.
<<til baka
|
|
Skráin |
|