Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 16.53
Hofstaðarannsóknir hafnar á ný
Nú eru rannsóknir hafnar að nýju í kirkjugarðinum á Hofstöðum í Mývatnssveit en þar hefur ekki verið grafið síðan 2004. Þetta kemur fram á vef Hins þingeyska fornleifafélags. Hildur Gestsdóttir hjá Fornleifastofnun Íslands stjórnar uppgreftrinum og ásamt henni vinna þau Stefán Ólafsson og Oddgeir Isaksen frá Fornleifastofnun, Marianne Robson frá háskólanum í Bradford og Celine Dupont-Hébert frá háskólanum í Laval í Quebec að rannsóknunum.

Nú hefur verið opnað 310 fermetra svæði norðan og austan við gamla uppgraftrarsvæðið auk þess sem hluti af „gamla“ uppgraftrarsvæðinu hefur verið opnað að nýju þar sem ekki tókst að ljúka þar rannsóknum 2004. Vonast er til að kirkjugarðsveggur sem sást á jarðsjármælingum frá 1999 finnist og einnig er verið að grafa upp öskuhaug frá gamla bæjarstæðinu á Hofstöðum. Jafnframt er verið að grafa upp fjórar fornar grafir og stefnt er að því að klára það verkefni í sumar.

Öskuhaugur gamla Hofstaðabæjarins mun án efa gefa margvíslegar upplýsingar um líf og lífsviðurværi Hofstaðbænda líkt og ruslahaugurinn við hinn forna Hofstaðabæ (skálann mikla) hefur nú þegar gefið. Rannsóknir á mannabeinum gefa ekki síður mikilvægar upplýsingar um líf og hagi fólks og af þeim má m.a. ráða margvíslegar upplýsingar um heilsufar, aldur, mataræði og annað slíkt. Rannsóknirnar á Hofstöðum eru styrktar af Fornleifasjóði og CUNY (City University of New York).


Gamli kirkjugarðurinn á Hofstöðum. Mynd: Hildur Gestsdóttir.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000