Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
19.51
Nýtt söluhús við Ásbyrgi
Handvershópurinn Heimöx er búinn að kaupa nýtt söluhús, sem stendur á planinu við verslunina Ásbyrgi í Kelduhverfi. Fyrsta sumaropnun var 18. júní og verður framvegis opið frá föstudegi til sunnudaga frá 11 -18 í sumar.
Heimöx er handverkshópur sem var stofnaður 29. febrúar 1992 af athafnakonum í Öxarfirði, Núpasveit og Kelduhverfi sem vildu koma handverki sínu á framfæri. Í hópnum eru nú 33 konur úr Norðurþingi á aldrinum 25-90 ára. Öll vinna hjá Heimöx hefur verið unnin í sjálfboðavinnu frá upphafi og mun vera það áfram.
Heimöx hefur rekið söluskúr við verslunina í Ásbyrgi í 17 ár, þar sem selt er handverk af ýmsu tagi sem framleitt er af meðlimum hópsins. Nýja húsið er 23 m2 smáhýsi og er finnskt bjálkahús sem búið er að heimfæra að íslenskum aðstæðum.
Það voru Framleiðnisjóður Landbúnaðins, Seljalax, Búnaðarsamband Norður Þing, Norðurþing og Kvenfélögin á svæðinu sem styrktu kaupin, og var aðstoð þeirra ómetanleg.

Söluhús Heimaxarkvenna við Ásbyrgi. Myndir: Laufey Halla Brynjarsdóttir.
<<til baka
|
|
Skráin |
|