Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 14.17
Húsavík í dag: Milt og makindalegt
Það er skjannabjört sól, 9 stiga hiti og austan andvari á Húsavík í dag. Örugglega svalt úti á flóa, en í skjóli uppi á landi er makindaveður. Enda nenna stokkandarsteggirnir við Búðarána varla að draga höfuð undan væng og dorma bara á árbakkanum. Börnin á Grænuvöllum eru hinsvegar ekki eins löt og andapabbar og þaðan berast glaðleg köll og hlátrasköll og greinilega gaman á Grænuvöllum.

Það er fullt af fólki í bænum, heimamenn, sveitamenn, erlendir og innlendir ferðamenn. Útlendu túristaranir eru margir afar líkir einhverjum frægum Íslendingum, og oft veit maður ekki hver er hver. Mér sýndist ég t.d. sjá Þorstein frá Hamri í bænum í gær og var hugsanlega hann, eða kannski bara einhver enskur lord.

Einn lord sem ég ek fram á þekki ég þó, sem sé Landlord Örlyg Hnefil Örlygsson, sem rekur gistiheimili við Laugarbrekkuna ásamt Gunna bróður sínum. Það er líka hefðarsnikkur á þeim stöllum Maddý og Zitu sem eru að spássera eftir Garðarsbrautinni og Zita auðvitað í bandi eins og hundalög gera ráð fyrir.

Óskar frændi minn og meðhjálpari Jóhanns er á sínum rauða jepplingi en Jói bróðursonur hans Hermanns á röltinu með derhúfu og axlarskjóðu. Hermann Ragnars og Nonni í Grafarbakka eru að spjalla fyrir utan Grím og snýta sér til skiptis, kannski að fá sér í nefið, nú eða bara nefkvefaðir. Nonni er í hvítum málara- eða múrarabuxum, sennilega múrara, því Nonni er múrari að mennt en ekki málari, alltént ekki listmálari eins og frændi hans Diddi Hall. Ég var einu sinni handlangari í múrverki hjá Nonna og hann var þægilegur boss.

Bárðardalsbræður Jónsveinn og Gunnar á morgungöngu og sá fyrrnefndi kveðst vera búin að lesa Skarp og viti því um allt sem er að gerast í bænum og er nú á leið að ná sér í Fréttablaðið til að verða sér úti um utanhéraðsfréttir. Fyrir utan Sundlaugina er skilti og á því stendur: Völsungur-Fylkir, laugardag kl. 14. Leikurinn er í Visa-bikarkeppni kvenna og skyldumæting á völlinn á morgun.

Óli Jak að slá garðinn sinn við Baldursbrekkuna, enda kjörið heyskaparveður. Garðar við Höfðabrekkuna í miklum blóma enda gamlagrónir og vel hirtir eins og fólkið í Höfðabrekkunni er sjálft upp til hópa. Mývetningur kemur röltandi upp Naustagilið. Fyrigefiði, þetta er ekki Mývetningur þó hann sé í hvítbotna gúmmískóm, þetta er greinilega Tékki, líkast til Pavel Vybarova eða Karel Smyrnov. Eldri hjón frá Gíbraltar sitja á bekk fyrir utan Baukinn og eru að tala um dómgæsluna á HM eða tengdason sinn, allavega eitthvað frekar neikvætt.

Heimir Bessa fyrir utan vigtarskúrinn með einhver plögg í höndum, væntanlega aflaskýrslur eða kvótakvittanir, hvað veit ég sem æfinlega hef verið utan kvóta. Bóbi á ferðinni á eldrauða jeppanum sínum og ekki með nýúthlutaða Fálkaorðuna í barmi, kempan er ekkert að flagga henni svona hvunndags, enda ekki Bóba stíll að hreykja sér á torgum. Kona með bandhund á vappi eftir Garðarsbrautinni, sólbrún og lekker. Hvutti er líka brúnn en sennilega ekki af völdum sólarinnar.

Stebbi Þórs stendur með stunguspaða uppi á Barðahússþakinu, væntanlega að skafa þar upp mosa eða annan jarðargróður. Skjannahvítur langjeppi er á undan mér eftir Fossvöllunum. Mér sýnist hann fyrst vera af sortinni, Super Duty, enda stendur það aftan á honum stórum stöfum, en svo sé ég að hann er líka að hluta til Ford, en Ford merkið er miklu minna en hitt, svo þetta er því aðallega Super Duty jeppi.

Björk Siguróla brunar framhjá á Rauðgulum póstbílnum og veifar glaðlega. Og Emma Friðriks, mamma Heidda Gutta og þeirra systkina, er tindilfætt á göngu. Emma var mikil frjálsíþróttakona á yngri árum eins og Siddi bróðir hennar, en stökk þó aldrei á stöng eins og hann, enda þá ekki búið að finna upp kvennastangarstökk.

Ég heyri eitthvert skrítið hljóð, annaðhvort í mínum bíl eða þeim sem ég er að mæta. Mér heyrist þetta vera skruðningar í spindilsílsunum. Best að hætta á rúntinum og kíkja aðeins á spindilsílsana til öryggis.

Svona var sem sagt Húsavík í dag. JS


Steggirnir á stíflunni eru heldur betur makindalegir og það voru fleiri bæjarbúar í dag.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000