Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
13.03
SOS sendir frá sér Mærulagið 2010
Húsvíska hljómsveitin SOS tók sig til nýverið og tók upp lag í kjallara gömlu mjólkurstöðvarinnar í tilefni Mærudaga 2010. Þeir notast við lag eftir Falco sem upphaflega ber nafnið Der Kommissar. Aðalsteinn Júlíusson (Addi lögga) samdi texta við lagið auk þess sem Húsvíkingurinn Bjarni Höskuldsson ku eiga einhverja frasa þar. Og dr. Unnsteinn Júlíusson bjó svo til myndband fyrir herlegheitin.
Ætla má að þeir félagar verði á fullu gasi um Mærudagana og vafalaust flytja þeir þetta lag þar.
Hljómsveitina SOS skipa: Aðalsteinn Júlíusson, Daníel Borgþórsson, Jósep Sigurðsson, Ragnar Þór Jónsson, Sigurjón Diddi Sigurðsson og Unnsteinn Ingi Júlíusson.
Myndbandið má nálgast hér.

SOS (mínus Diddi) á Mærudögum 2008
<<til baka
|
|
Skráin |
|