Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 13.29
Jarðskjálftarannsóknir við borholuna á Höfða
Nú í sumar munu mælar verða settir við borholuna á Húsavíkurhöfða í tengslum við rannsókn á efnabreytingum í vatni fyrir jarðskjálfta. Helga Rakel Guðrúnardóttir, meistaranemi við Háskólann á Akureyri og Stokkhólmsháskóla, mun sjá um uppsetninguna og tengingu við jarðskjálftaeftirlitskerfi Veðurstofu Íslands en fyrsti hluti verkefnisins mun taka um tvö ár.

Stokkhólmsháskóli hefur síðan 2002, í samvinnu við Orkuveitu Húsavíkur, tekið sýni vikulega úr borholunni og er því til mikið gagnasafn um breytingar á efnasamsetningunni. Sést hafa breytingar á tilteknum efnum allt að tveimur vikum fyrir jarðskjálfta. Von er bundin við að með þessum rannsóknum sé hægt að þróa sjálfvirkt kerfi til að spá fyrir um jarðskjálfta með því að fylgjast með efnabreytingum í vatni.

Samhliða mælingunum á Húsavíkurhöfða eru gerðar mælingar í borholunni við Hafralækjaskóla. Þetta kemur fram á heimasíðu Orkuveitu Húsavíkur.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000