Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
14.38
Glæsilegar sýningar í Safnahúsinu
Safnahúsið á Húsavík var opnað á ný um helgina eftir viðamiklar breytingar og gerði það með og stórskemmtilegum sýningum, en þær eru: Mannlíf og náttúra – 100 ár í Þingeyjarsýslum. Samvinnusýning. Ljósmyndir Silla. Myndlistarsýning Joris Rademaker.
Stóra sýningin á annari hæð þar sem Bókasafnið var áður hýst, fjallar um sambúð manns og náttúru í Þingeyjarsýslum á árabilinu 1850-1950 og er hluti sýningarinnar helgaður Samvinnuhreyfingunni á Íslandi.
Fjöldi manna var viðstaddur formlega opnun sýninganna s.l. laugardag og margir litu einnig við á Grenjaðarstað.
Að sögn Sigrúnar Kristjánsdóttur, forstöðumanns Menningarmiðstöðvar Þingeyinga, verður af þessu tilefni ókeypis aðgangur að Safnahúsinu og byggðasafninu á Grenjaðarstað frá sunnudeginum 13. júní til sunnudagsins 20. júní og eru allir hjartanlega velkomnir. Opið er kl. 10-18 alla daga. JS

Sigrún Kristjánsdóttir ávarpar gesti við opnun sýninganna.
<<til baka
|
|
Skráin |
|