Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 10.27
Yfirlýsing frá V-listanum í Norðurþingi
Aðstandandur V-listans í Norðurþingi hafa af gefnu tilefni sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu sem birtist fyrst í Skarpi í síðustu viku. Yfirskriftin er: Ekki til sölu!

"Vegna fréttaflutnings af endaslepptum viðræðum allra flokka í Norðurþingi um svokallaða samstöðupólitík að loknum kosningum síðastliðinn laugardag, vilja aðstandendur V-listans koma eftirfarandi á framfæri:

Gunnlaugur Stefánsson, oddviti Framsóknarmanna í sveitarstjórn, bauð til viðræðna um samstöðupólitík sem gengi út á samstarf allra framboðanna fimm, síðdegis á mánudag, 31. maí. Trausti Aðalsteinsson og Hilmar Dúi Björgvinsson sóttu fundinn fyrir hönd V-listans til að kynna sér hvað lægi að baki þessum vangaveltum, enda þótti ótækt að hafna fyrirfram hugmyndum um slíkt samstarf, ekki síst í ljósi stöðu sveitarfélagsins.

Þegar á hólminn var komið gerðu fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks fundarfólki ljóst að í boði væri áhrifaseta í nefndum, hugsanlega formennska, gegn skilyrðislausum stuðningi við þá stóriðjustefnu sem rekin hefur verið undanfarin ár. Sérstaklega var tekið fram að ekkert pláss væri fyrir náttúruverndarhugmyndir á borð við friðlýsingu Gjástykkis og Jökulsár á Fjöllum eða fyrirheit um að ekki yrði sótt að Skjálfandafljóti við hugsanlega orkuöflun fyrir stóriðju. Að svo búnu viku fulltrúar V-listans af fundi til að ræða við bakland sitt og varð það einróma niðurstaða þar, eftir mjög skammvinna umræðu, að þeirri stefnu sem mörkuð var fyrir kosningar yrði áfram fylgt að kosningum loknum.

Viljum við koma á framfæri þakklæti til þeirra fjölmörgu kjósenda sem greiddu okkur atkvæði á kjördag."

Aðstandandur V-listans í Norðurþingi.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000