Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
13.35
Norðurþing: Nýr meirihluti í höfn
Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin hafa ákveðið að hefja meirihlutasamstarf í sveitarfélaginu Norðurþingi. Málefnasamningur þess efnis var undirritaður nú í hádeginu. Samningurinn er grundvallaður á stefnuskrám flokkanna þriggja og byggir á góðu samstarfi á liðnu kjörtímabili þar sem traust og heiðarleiki hefur verið í fyrirrúmi.
Hinn nýji meirihluti er með 7 af 9 sveitarstjórnarfulltrúum í Norðurþingi. Meginmarkmið meirihlutans er uppbygging atvinnulífs og orkunýting í héraði, aðhalds og skynsemi verði gætt í starfsemi Norðurþings og stuðlað verði að auknu samstarfi sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum.
Þá hefur meirihlutinn óskað eftir því að Bergur Elías Ágústsson gegni áfram starfi sveitarstjóra.
Hinn nýja meirihluta skipa: Gunnlaugur Stefánsson, Framsóknarflokki. Jón Grímsson, Framsóknarflokki. Jón Helgi Björnsson, Sjálfstæðisflokki. Þráinn Gunnarsson, Samfylkingu. Soffía Helgadóttir, Framsóknarflokki. Hjálmar Bogi Hafliðason, Framsóknarflokki. Olga Gísladóttir, Sjálfstæðisflokki.

Meirihlutinn fyrir utan Stjórnsýsluhúsið á Húsavík í glampandi sól. Sólskinsstjórnin? F.v. Olga, Þráinn, Soffía, Gunnlaugur, Jón Helgi, Jón Gríms og Hjálmar Bogi.
<<til baka
|
|
Skráin |
|