Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Borðstofuborð og sex stólar

Endurvakning á Garðyrkjufélagi

Geymsluhúsnæði í Aðaldal
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 15.22
Fjallalamb: Upprunamerkt læri og hryggir.
Fjallalamb á Kópaskeri hefur nú sett upprunamerkingu á frosin,lauspökkuð læri og hryggi. Þetta er stórt skref sem fyrirtækið er að stíga í innleiðingu upprunamerkingar á afurðum. En stefnt er að því að koma merkingunni á sem flestar vörur þar sem hægt er að koma henni við.

Fyrir þá sem ekki vita hvernig upprunamerkingin virkar þá fylgir miði með númeri innleggjenda með hverri einingu. Neytendur geta svo farið inn á www.fjallalamb.is smellt þar á upprunamerkingu og sett þar númerið inn. Þá sjá þeir mynd af býli innleggjenda ásamt upplýsingum um ábúendur.

"Þessi stóri áfangi hjá Fjallalambi staðfestir ennfrekar gæði framleiðslu okkar ásamt því að tengja betur neytendann við framleiðendur. Bændur sem leggja inn í Fjallalambi telja sig vera að framleiða það góða vöru að þeir þora að setja nafnið sitt á hana." Segir Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri Fjallalambs.

Þessa vöru er nú einungis hægt að fá í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000