Skarpur.is |
Rafrænn Skarpur |
Viðburðir |
Engir viðburðir hafa verið skráðir
|
|
Smáauglýsingar |
|
- kl.
11.04
Stefnir allt í meirihluta, B, D og S
Meirihlutaviðræður í Norðurþingi ganga vel, að sögn Gunnlaugs Stefánssonar, oddvita B-lista. Hann fundaði í gær með Jóni Helga Björnssyni, oddvita D-lista og Þráni Gunnarssyni, oddvita S-lista og þremenningarnir munu hittast aftur eftir hádegið til skrafs og ráðagerða.
"Þetta lítur vel út og á þessu stigi sé ég ekkert sem gæti komið í veg fyrir að við næðum saman, það yrði þá eitthvað mjög óvænt." Sagði Gunnlaugur.
Flokkarnir þrír sem virðast vera að ná að rugla saman reitum sínum, eru með sjö fulltrúa í sveitarstjórn af níu. Í minnihluta yrðu þá V-listi með einn og Þ-listi með einn. JS

Á fundi fráfarandi sveitarstjórnar Norðurþings á dögunum. Gunnlaugur Stefánsson í pontu.
<<til baka
|
|
Skráin |
|