Fréttaskot á Skarp
Skarpur.is
Forsíða
Eldri fréttir
Myndaalbúm
Senda fréttaskot
Gerast áskrifandi
Um Skarpur.is
Rafrænn Skarpur
Kennitala:
Lykilorð:
 
Gerast áskrifandi
Um rafrænan Skarp
Viðburðir
Engir viðburðir hafa verið skráðir
Allir viðburðir
Skrá viðburð
Smáauglýsingar

Óska eftir íbúð

Til sölu eða leigu!

Bíll til sölu!
Allar smáauglýsingar
Skrá smáauglýsingu
- kl. 11.43
Norðurþing: Samstarf allra lista út úr myndinni
Eins og fram hefur komið bauð B-listi öllum framboðum í Norðurþingi upp viðræður um samstarf allra í sveitarstjórn. Fundað var á sunnudag með öðrum framboðum og síðan í gær með öllum kjörnum fulltrúum nema Jón Gríms sem komst ekki og nokkrum varafulltrúum. Þar kom í ljós að stóra málið sem gæti brotið á var stóriðjumálið.

“Við settum fram þá kröfu að menn myndu vinna eftir viljayfirlýsingu sveitarfélaganna hér og ríkisstjórnarinnar og hlíta þeirri niðurstöðu sem þar kæmi endanlega fram. VG eiga auðvitað aðild að þeirri yfirlýsingu í gegnum ríkisvaldið. Og svo var einnig krafa um að við tækjum ekki upp svæðisskipulag háhitasvæðanna hérna, m.a. um friðlýsingu Gjástykkis, en á það lögðu Vinstri grænir áherslu.

Menn fóru með þetta heim eftir fundinn til að hugleiða. Og í gærkvöldi höfðu svo fulltrúar VG samband og tilkynntu að þetta gengi ekki, þeir væru ekki tilbúnir til að beygja sig undir þessar kröfur. Þannig að samstarf allra flokka í sveitarstjórn Norðurþings er þar með út úr myndinni.”

Aðspurður um framhaldið, hvort ekki lægi beinast við að sami meirihluti yrði þá áfram, B- og D-listi með sex fulltrúa, sagði Gunnlaugur. “Við getum raunar valið hvern sem er af þessum flokkum, nema VG auðvitað. Það var stefnan að reyna að ná öllum saman, en fyrst það tókst ekki, þá verður þetta væntanlegra hefðbundnara meirihlutamynstur.”

- Sem sagt fyrra meirihlutaform?

“Já, eða eitthvað útvíkkað, ég útiloka það ekki.” Sagði Gunnlaugur og kveðst stefna að því að klára málið jafnvel í dag eða á morgun. Þannig að ekki er ólíklegt að Framsóknarmenn bjóði Samfylkingunni með í þriggja flokka og sjö manna meirihluta. JS


D-listi Jóns Helga og B-listi Gunnlaugs væntanlega áfram í meirihluta og hugsanlega að viðbættum S-lista.


<<til baka
Skráin
framsyn
nordurting.jpg
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
Birkiland
Skráin
34. tbl. - 2. septemb.
33. tbl. - 26. ágúst
32. tbl. - 19. ágúst
Eldri Skrár
Um Skrána
skarpur@skarpur.is
464-2000